Í Facebook-hópnum „Skemmtileg íslensk orð“ var nýlega spurt hvort fólk kannaðist við sambandið sofna á sig. Viðbrögðin voru m.a. „Nei hljómar fremur undarlega en fólk er kannski bara svona illa talandi“, „Hef aldrei heyrt og finnst skýringin þunn“, „Bullið sem maður les stundum hérna“, „hljómar frekar undarlega“. Sambandið kom úr viðtali í Vísi og var haft eftir ungri konu: „Ef ég reyni að horfa á eitthvað á kvöldin þá „sofna ég iðulega á mig“ – orðatiltæki sem er reyndar mjög umdeilt á heimilinu. Maðurinn minn heldur því fram að maður geti ekki sofnað á sig, heldur sé þetta meðvituð ákvörðun um að leyfa sér að sofna með því að koma sér vel fyrir í þægilegri stellingu. Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig.“
Þátttakendur í umræðu um þetta í „Skemmtileg íslensk orð“ könnuðust ekki við sambandið, enda kemur greinilega fram í tilvitnuninni hér á undan að konan sem um ræðir er meira að segja ein um það á sínu heimili að nota það. Einu sinni skrifaði ég um „orð eða orðasambönd sem eru eingöngu notuð innan ákveðinnar fjölskyldu, vinahóps eða vinnustaðar. Þetta geta verið hnyttin orð úr barnamáli, oft byggð á misskilningi barna sem eru að tileinka sér málið; skemmtileg mismæli; vísvitandi afbakanir; óvænt, sérkennileg eða fyndin tilsvör; erlendar slettur o.fl., sem eru þá notuð í tíma og ótíma innan viðkomandi hóps en eru óþekkt og oft óskiljanleg utan hans.“
Sambandið sofna yfir sig er augljóslega af þessu tagi, hvort sem það er upprunnið hjá konunni sem vitnað var til eða einhverjum í nærumhverfi hennar. Það er svo sem ekkert fráleitt og á sér hliðstæður eins og gera á sig, pissa á sig, hlaupa á sig þar sem sameiginlegur merkingarþáttur er 'gera mistök, gera óvart' eða eitthvað slíkt. Það er samt aukaatriði – aðalatriðið er að heimilis- og fjölskylduorð af þessu tagi eru fullkomlega eðlilegur og sjálfsagður hluti tungumálins. Við eigum öll íslenskuna og höfum fullt leyfi til að leika okkur með hana, búa til ný orð og orðasambönd. Það er út í hött að amast við því eða hneykslast á því enda eru þetta engin málspjöll – þvert á móti. Þetta gerir bara lífið skemmtilegra og tungumálið meira lifandi.

+354-861-6417
eirikurr