Posted on

Tungumál og tjáningarfrelsi

Í nýju frumvarpi Snorra Mássonar og fleiri þingmanna Miðflokksins um breytingu á 14. grein Markaðssetningarlaga er lagt til að í stað orðsins „eingöngu“ komi „einnig“ þannig að ákvæði sem heimilar að auglýsing sé eingöngu á erlendu máli falli brott. En í frumvarpinu eru líka ákvæði um form og framsetningu auglýsinga sem eru á erlendu máli auk íslensku: „Sé það gert skal íslenskur texti auglýsingar vera mest áberandi, svo sem efst á blaði, feitletraður eða í stærra letri en texti á öðrum málum. Skilti, vegvísar, heiti á tegund atvinnustarfsemi og útiauglýsingar, þar á meðal útiauglýsingar sem settar eru upp á almannafæri í þágu stjórnmálabaráttu, skulu vera á íslensku en mega þar að auki hafa til hliðar útlenska þýðingu.“

Þetta er vitanlega alveg í anda þess sem ég hef ótal sinnum skrifað um, og þess vegna ekkert óeðlilegt að í umræðum í Facebook-hópnum „Málspjalli“ skyldi nýlega koma fram undrun á því að ég skyldi ekki „sýna þessu máli aðeins meiri stuðning“. Það er alveg rétt að ég hef verið gagnrýninn á umrætt frumvarp og fyrir því eru fjórar ástæður. Í fyrsta lagi og það sem ég hef einkum skrifað um er brottfelling undantekningarákvæðinsins sem heimilar að auglýsing sé eingöngu á erlendu máli við sérstakar aðstæður. Ég tel þetta mjög misráðið – eins og ég hef áður rökstutt er þessi undantekning eðlileg og nauðsynleg, enda skilgreind mjög þröngt. Mér finnst líka óeðlilegt að í greinargerð með frumvarpinu er vísað í orðalag brottfallinna laga.

Í öðru lagi tel ég að til að ná fram breytingum á þessu sviði hefði verið vænlegra að leggja fram frumvarp um eflingu Neytendastofu til að auðvelda henni að sinna eftirlitshlutverki sínu við að framfylgja umræddu lagaákvæði. Það er nýbúið að breyta ákvæðinu og skerpa á því – eldra orðalag um auglýsingar „sem höfða eigi til íslenskra neytenda“ þótt loðið og erfitt að framfylgja því, en orðalag gildandi laga er mun ótvíræðara sem ætti að auðvelda eftirfylgni. En það er ekki nema hálft ár síðan þau lög tóku gildi og því lítið farið að reyna á framkvæmdina. Ég er samt ekki trúaður á að mikið breytist – Neytendastofa hefur margt á sinni könnu og ólíklegt að ákvæði um tungumál auglýsinga verði þar forgangsatriði fremur en hingað til.

Í þriðja lagi, og það sem kannski er alvarlegast í þessu: Samkvæmt frumvarpinu (og raunar líka samkvæmt gildandi lögum, nema þar sem áðurnefnt undantekningarákvæði á við) væri bannað að birta auglýsingu sem væri eingöngu á erlendu máli. Ég er vitanlega ekki lögfræðingur, en ég sé ekki betur en slíkt bann höggvi býsna nærri tjáningarfrelsisákvæði 73. greinar Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands – „Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.“ Þær undantekningar sem nefndar eru í greininni eiga ekki við hér. Hljóta það ekki að teljast „tálmanir á tjáningarfrelsi“ að banna auglýsingar sem eru eingöngu á erlendu máli? Mér finnst a.m.k. að þingmenn verði að skoða þetta mjög vandlega áður en það yrði samþykkt.

Í fjórða lagi – sem er vissulega óháð fyrirliggjandi frumvarpi – er ég mjög efins um gagnsemi og réttmæti lagasetningar af þessu tagi yfirleitt. Vitanlega er hægt að styðja við íslenskuna á ýmsan hátt með lagasetningu, og sjálfsagt að ríki og sveitarfélögum, sem og stofnunum í opinberri eigu svo sem Isavia, sé lagalega skylt að nota íslensku í allri sinni starfsemi. En íslenskri tungu verður ekki viðhaldið með lögum. Ef á að halda henni við verður það að vera vilji málnotenda, og þeir verða þá að sýna hann í verki. Þess vegna er grundvallaratriði að vekja auglýsendur og almenning til vitundar um mikilvægi þess að auglýsingar séu á íslensku. Ef umræða um áðurnefnt frumvarp stuðlar að slíkri vitundarvakningu er það vitanlega gott.