Posted on

Að fá leið(a) á

Í gær rakst ég á fyrirsögnina „Það eru margir komnir með leið á þessu“ á Vísi. Þetta er auðvitað venjulegt mál og enginn vafi á því hvað það merkir – „Fólk sé orðið leitt á þessum dögum“ segir líka í fréttinni og er augljóslega vísað til hins sama. En ef orðinu leið er flett upp í orðabókum finnst engin skýring sem geti átt við í þessu tilviki. Skýringarnar í Íslenskri nútímamálsorðabók eru 'braut, vegur eða slóð sem farin er' og 'aðferð, háttur, úrræði, lausn' – samsvarandi skýringar eru í Íslenskri orðabók auk nokkurra annarra sem ekki eiga heldur við. Hins vegar er sambandið fá leiða á að finna undir karlkynsorðinu leiði í Íslenskri nútímamálsorðabók, skýrt 'verða leiður á' – sem er merkingin sem við á í dæminu í Vísi.

Það er enginn vafi á því að karlkynsorðið leiði er þarna upprunalegt og fá leiða á er því upphafleg mynd sambandsins. En vegna þess að áherslulaust endingarsérhljóð, a, fer næst á undan tvíhljóðinu á, fellur það brott í eðlilegum framburði í samræmi við venjulegar reglur málsins – úr verður fá leið á. Slíkt brottfall í framburði á þó ekki að hafa áhrif á rithátt samkvæmt almennum reglum – „þetta hljómar eins og kvenkynsorðið leið. En ég held við komumst ekki hjá því að skrifa leiða“ sagði Gísli Jónsson í þættinum „Íslenskt mál“ í Morgunblaðinu 1986. Þegar fólk skrifa leið í stað leiða í þessum samböndum gæti það vissulega stundum verið ritvilla, en dæmin eru samt alltof mörg til að eðlilegt sé að greina þau öll þannig.

Þegar lýsingarorð sem tekur kvenkynsbeygingu stendur með leið fer ekki á milli mála að fólk lítur svo á að um kvenkynsorðið leið sé að ræða en ekki karlkynsorðið leiði. Í Heimili og skóli 1951 segir: „Hann hafði fengið svo mikla leið á þessari setningu.“ Í Tímanum 1981 segir: „Ég er alin upp í sveit og var búin að fá algera leið á búskapnum.“ Á Fótbolti.net 2013 segir: „Ég [...] var búinn að fá hálfgerða leið á ástandinu í fótboltanum.“ Í Mannlífi 2020 segir: „En fyrir okkur, sem erum komin með dálitla leið á bandaríska meinstríminu.“ Með leiða á hafa lýsingarorð karlkynsbeygingu, eins og „Ég er búin að fá hálfgerðan leiða á þessum ungu strákum“ í Vísi 1980, en engin dæmi eru um að lýsingarorð hafi karlkynsbeygingu með leið á.

Elsta dæmi sem ég finn um sambandið fá leiða á er í Fimmtíu heilögum hugvekjum Johans Gerhard frá 1634: „Krossinn lætur oss fá ama og leiða á veröldunni.“ Elsta dæmi um fá leið á er í Heimskringlu 1897: „Mér fór alt af versnandi þangað til ég var búin að fá leið á lífinu.“ Dæmi um bæði samböndin eru sárafá fram eftir tuttugustu öld og þó öllu fleiri um fá leiða á, en eftir 1940 fer dæmum fjölgandi og fá leið á siglir langt fram úr. Á tímarit.is eru samtals 316 dæmi um fá leiða á en 931 um fá leið á, auk fjölda dæma um aðrar beygingarmyndir af fá og dæma með neitun. Í Risamálheildinni eru dæmin um fá leið á (í öllum beygingarmyndum og með neitun) hátt í fjögur hundruð, en samsvarandi dæmi um fá leiða á nærri fjögur þúsund.

En í fréttinni sem vísað var til í upphafi er ekki notað sambandið fá leið á heldur kominn með leið á, og það virðist vera mjög nýlegt. Elsta dæmi sem ég finn um það er í Degi 1987: „fjölskyldan var að verða komin með leið á þessum mat.“ Það er athyglisvert að þarna er notuð „ranga“ myndin leið og nokkur dæmi um hana má finna á tímarit.is áður en „rétta“ myndin leiða sést í fyrsta sinn níu árum á eftir hinni, í Alþýðublaðinu 1996: „Ég var kominn með leiða á leikhúsi.“ Dæmin með leið á tímarit.is eru meira en helmingi fleiri en dæmin með leiða, en munurinn er margfalt meiri í Risamálheildinni – þar eru dæmin með leiða tæplega hundrað og fimmtíu en með leið hátt í þrjú þúsund, eða um tuttugu sinnum fleiri.

Gísli Jónsson mælti gegn fá leið á eins og áður segir, og víðar er agnúast út í þá gerð sambandsins. Í Málfarsbankanum segir: „Rétt er með farið að segja þau fengu leiða á efninu, ekki „þau fengu leið á efninu“.“ Þetta hefur einnig verið tekið fyrir í molunum „Málið“ í Morgunblaðinu þar sem sagði 2012: „Að fá leið á virðist næstum búið að útrýma að fá leiða á, rétt eins og ein dýrategund útrýmir annarri. Þó er leiði málið en alls engin leið. Hvernig væri að við færum aftur að verða leið á hlutunum?“ Ári síðar sagði í sama þætti: „Í hundraðastaogellefta sinn skal ítrekað að ef menn vilja endilega láta sér leiðast eitthvað eiga þeir ekki að fá „leið“ á því heldur leiða: fá leiða á e-u. Skemmtilegast er þó að verða leiður á því.“

Það er þó ljóst að í báðum samböndunum sem hér um ræðir, fá leið(a) á og kominn með leið(a) á, er „ranga“ myndin leið algerlega yfirgnæfandi. Í ljósi tíðni hennar og þess að hún hefur tíðkast frá lokum nítjándu aldar kemur ekki annað til greina en að viðurkenna hana sem „rétt mál“ í þessu samhengi. Það þarf því að bæta einni merkingu við skýringu kvenkynsorðsins leið í orðabókum‚ merkingunni 'það að vera leiður, dapur' og setja þar undir samböndin fá leið á og kominn með leið á. Slík samhljómun, þar sem óskyld orð falla saman í framburði, er auðvitað algeng, og eins er algengt að sama orðið sé til í fleiri en einu kyni, stundum þá með mismunandi beygingarendingum. Breytingin leiða á í leið á er fullkomlega eðlileg málþróun.