Posted on

Að kasta undir rútuna

Í fyrirsögn á vef Ríkisútvarpsins í dag segir: „Sakar Sigurð Inga um að kasta starfsmönnum ráðuneytis undir rútuna.“ Þarna er vitnað í orð þingflokksformanns Samfylkingarinnar sem sagði á Alþingi: „Við hljótum að gera þá kröfu í störfum þingsins að þingmenn fari með rétt mál, beri ábyrgð á eigin ákvörðunum og reyni ekki að kasta starfsfólki heils ráðuneytis undir rútuna í fjölmiðlaviðtölum til að fegra eigin hlut.“ Orðasambandið kasta / henda undir rútuna er nýlegt í málinu og ekki að finna í neinum orðabókum, en hefur nokkuð verið notað í íslensku á allra síðustu árum. Það merkir augljóslega 'gera einhvern að blóraböggli', 'skella skuldinni að ósekju á einhvern sem getur ekki varið sig til að bjarga sjálfum sér' eða eitthvað slíkt.

Eins og mörg önnur nýleg orðasambönd er þetta komið úr ensku – þar er talað um að throw someone under the bus sem Merriam-Webster orðabókin skýrir 'to criticize, blame, or punish (someone in a vulnerable position) especially in order to avoid blame or gain an advantage'. Sambandið er talið upprunnið í breskri ensku og ekki mjög gamalt – elsta þekkta dæmi um það á prenti er frá árinu 1982. Þar er reyndar notuð sögnin push en ekki throw, og einnig eru dæmi um shove en þessar þrjár sagnir hafa svipaða merkingu í þessu samhengi. Sambandið er einkum sagt hafa verið notað í íþróttamáli framan af en notkun þess jókst stórlega kringum bandarísku forsetakosningarnar 2008. Ekki löngu síðar virðist það hafa borist til Íslands.

Elstu dæmi sem ég finn um sambandið í íslensku eru á samfélagsmiðlum. Á Bland.is 2015 segir: „Sjitt sú var ekki lengi að henda systurinni undir strætó þegar hlutirnir fara úrskeiðis“ og „Ef það er einhver sem er að henda vændisfólki undir vagninn þá er það Amnesty“. Á Twitter 2015 segir: „mér finnst allavega lélegt að henda út svona yfirlýsingu og henda leikmanni undir rútuna.“ Fljótlega fara þó að sjást dæmi í vef- og prentmiðlum. Í Morgunblaðinu 2017 segir: „Mér finnst bara eins og sé verið að henda þeim fyrir rútuna.“ Á Fótbolti.net 2018 segir: „Portúgalinn kastar leikmönnum undir rútuna.“ Á Fótbolti.net 2019 segir: „Án þess að henda Óla Jó undir rútuna.“ Í Fréttablaðinu 2020 segir: „hann henti öllu liðinu undir rútuna.“

Eins og í ensku virðist sambandið framan af einkum hafa verið notað í íþróttamáli, en nú er einnig farið að nota það í umræðu um önnur mál. Eins og í ensku eru líka tilbrigði í orðanotkun – stundum er notuð sögnin kasta en þó oftar henda, og hrinda kemur fyrir, stundum er fyrir haft í stað undir, og stöku sinnum er talað um vagninn eða strætó í staðinn fyrir rútuna. Ljóst er að notkun sambandsins í íslensku fer vaxandi þótt sumum kunni að finnast það illa ættað og amist við því þess vegna. Vissulega getur orkað tvímælis að taka orðasambönd beint úr ensku en þetta samband er mjög myndrænt og myndlíkingin í því á ekkert síður við í íslensku en ensku, auk þess sem orðin í því eru auðvitað íslensk. Mér finnst engin sérstök málspjöll að því í íslensku.