Posted on

Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur

Í fyrirsögn á vef Ríkisútvarpsins í gær stóð „Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“. Þarna var vitnað í viðtal við Magna Ásgeirsson söngvara og einn skipuleggjenda „Bræðslunnar“ á Borgarfirði eystra. Í Facebook-hópnum „Hollvinir Ríkisútvarpsins“ var hneykslast á fyrirsögninni og bent á að þarna ætti að vera búinn, eins og stendur reyndar í texta fréttarinnar, „Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur“ – þ.e., notuð er karlkynsmyndin búinn í stað hvorugkynsmyndarinnar búið. Í hljóðskrá með viðtalinu er raunar erfitt eða ómögulegt að heyra hvora myndina Magni notar í raun og veru. En þar sem vísað er til karlkynsorðsins sólarhringur má vissulega halda því fram að karlkynið sé þarna eðlilegra.

En hvorugkynið er samt líka hugsanlegt, og ekki rangt. Lýsingarorð og lýsingarhættir samræmast venjulega frumlagi setningarinnar í kyni og tölu. Frumlagið er þarna ábendingarfornafnið þetta sem stendur í hvorugkyni, og því er búið einmitt sú mynd sem við væri að búast samkvæmt reglum. Berum þetta saman við setningu eins og kvöldið er búið að vera erfiður tími ­sem er hliðstæð nema hvað frumlagið er þar nafnorð í hvorugkyni en ekki fornafn. Þar finnst mér hvorugkynið búið þar sem lýsingarhátturinn samræmist frumlaginu kvöldið vera langeðlilegast þótt e.t.v. geti einnig komið til greina, a.m.k. í máli sumra, að láta lýsingarháttinn samræmast karlkynsorðinu tími og segja kvöldið er búinn að vera erfiður tími.

Þótt samræmi í kyni og tölu sé almennt bundið við frumlag getur nefnilega komið fyrir að lýsingarorð eða lýsingarháttur samræmist öðrum nefnifallslið ef hann er til staðar í setningunni. Þetta á einkum við ef frumlagið er fornafn í hvorugkyni, það eða þetta. Þess vegna er þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur alveg eðlileg setning þótt athyglisverður sólarhringur sé ekki frumlag setningarinnar. En samræmi við frumlag getur samt aldrei verið rangt og þess vegna er þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur líka rétt íslenska. Annað dæmi um samræmi við nefnifallslið sem ekki er frumlag er þegar sagt er mér finnast þessar bækur góðar í stað mér finnst þessar bækur góðar þessar bækur er ekki frumlag.