Í skáldsögunni Maður og kona eftir Jón Thoroddsen segir frá því þegar ein aðalpersónan, séra Sigvaldi, reynir að koma sér hjá því að semja predikun en leitar þess í stað í ræðusafni sem hann hafði keypt af öðrum presti og finnur viðeigandi texta, en „hér er galli á gjöf Njarðar, vantar sumsé tvö eða þrjú blöð aftan af ræðunni, og svo mun ég hafa fengið hana [...] – en látum samt sjá, hér getur verið amen eftir efninu, hum, hum“. Eins og bent var á í þætti Gísla Jónssonar, „Íslenskt mál“, í Morgunblaðinu 1994 merkir forsetningin eftir hér 'samkvæmt'. Merkingin er sem sé sú að skil eru í ræðunni á þessum stað og henni gæti efnisins vegna lokið þar. Jón G. Friðjónsson fjallaði einnig um þetta samband í sama þætti bæði 2006 og 2007.
Ástæðan fyrir því að Gísli og Jón töldu ástæðu til að hnykkja á þessu er að sambandið kemur í seinni tíð oft fyrir í myndinni amen á eftir efninu sem er þá notað í merkingunni 'binda endahnútinn á eitthvað, segja eitthvað gott'. Þetta afbrigði sambandsins fer að sjást upp úr 1980 – í Morgunblaðinu 1982 segir: „Og hér setjum við amen á eftir efninu og munum reyna að gleyma þessum leik sem allra fyrst.“ Í DV 1982 segir: „Þar með er sett amen á eftir efninu og myndirnar látnar tala sínu máli.“ Í Þjóðviljanum 1983 segir: „Og þegar okkur hefur með þessu móti tekist að sameina nútímann þjóðlegri hefð á listrænan og eftirminnilegan hátt getum við sett amen á eftir efninu.“ Í Degi 1984 segir: „Og þar með setjum við amen á eftir efninu.“
Merkingin í amen eftir efninu og amen á eftir efninu er sem sé ekki alveg sú sama þótt munurinn sé e.t.v. ekki mikill. Upphaflega merkingin er 'hér eru efnisleg skil og hægt að láta líta svo út sem þessu sé lokið' en það nýja merkir einfaldlega 'við segjum þessu lokið'. Það er auðvitað ljóst að séra Sigvaldi sagði amen eftir efninu en ekki amen á eftir efninu og á þeim forsendum geta þau sem vilja vitaskuld hafnað nýja sambandinu. En vegna þess að merking þess er svolítið önnuð kemur líka til greina að viðurkenna það sem sjálfstætt orðasamband – það er ekki endilega órökrétt að setja amen á eftir efninu. Nýja sambandið virðist líka hafa náð nokkurri fótfestu – í Risamálheildinni eru tæp 70 dæmi um það en tæp 80 um það upphaflega.

+354-861-6417
eirikurr