Posted on

Hvað er -ur í faraldur?

Í inngangi fréttar á vef Ríkisútvarpsins í dag stóð upphaflega: „Trans sé ekki geðsjúkdómur og að um engan farald sé að ræða.“ Nú hefur farald verið breytt í faraldur sem er í samræmi við venjulega og viðurkennda beygingu orðsins eins og hún er gefin í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. En það þýðir ekki endilega að upphaflega gerðin hafi verið röng. Orðið faraldur á sér nefnilega merkileg sögu. Í fornu máli kemur orðið fyrir í hvorugkyni – í Önnu sögu frá fyrri hluta sextándu aldar segir: „Þá fékk hann það faraldur að hann varð villur og ráðlaus.“ Þarna merkir orðið 'sjúkdómur, veiki'. En einnig kemur fyrir hvorugkynsorðið farald í merkingunni 'leið, ferð' í sambandinu (með) hverju faraldi sem merkir 'hvernig, á hvaða hátt'.

Í Íslenskri orðsifjabók er hvorugkynsorðið farald sagt merkja 'farsótt; siður, háttur' en vera úrelt, en karlkynsorðið faraldur er skýrt 'umgangsveiki; hátterni sem breiðist út'; eiginlega 'umferð'. Hvorugkynsorðið faraldur er hins vegar ekki nefnt. Í Íslenskri orðabók er hvorugkynsorðið farald einnig sagt „fornt/úrelt“ og vísað á faraldur sem er eingöngu tilfært í karlkyni. Til þessara tvímynda er vísað í Læknablaðinu 2001 þar sem segir: „Þess vegna nota sumir fræðimenn heitið faraldsfræði og aðrir faraldursfræði.“ Þarna eru sem sé þrjár myndir sömu merkingar – karlkynsorðin faraldur og hvorugkynsorðin faraldur og farald. Milli þeirra er mikið samfall í beygingu og því oft útilokað að átta sig á hverja þeirra er verið að nota.

En ekki nóg með þetta. Karlkynsorðið faraldur hefur nefnilega tvær beygingar – þá venjulegu sem gefin er í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls og aðra þar sem farið er með -ur sem nefnifallsendingu, eins og í fréttinni sem vitnað var til í upphafi. Í Norðra 1857 segir: „ekkert ráð sje til að verja bjargræðisstofn sveitabúanna við farald þessum.“ Í Lögbergi 1917 segir: „Einnig ríður á að fara vel með sig ef kvefsótt eða annan farald ber að höndum.“ Í Stormi 1925 segir: „Þrátt fyrir styrjöldina miklu, innflúensudrepsóttina og ýmiskonar faralda.“ Í Speglinum 1935 segir: „Nú hefir þjóðin fengið þann farald.“ Í Tímanum 1982 segir: „þegar inflúensufaraldur er að réna veikjast ýmsir af öðrum inflúensuvírus er olli þeim faraldi.“

Elsta dæmi sem ég finn um karlkynsorðið faraldur er í Klausturpóstinum 1826: „gekk mikill hundafaraldur í Svíaríki.“ Þarna sést ekki hvort -ur er ending eða hluti stofns, og sama máli gegnir um önnur elstu karlkynsdæmin. Ótvíræð dæmi um að -ur sé stofnlægt sjást ekki fyrr en undir lok nítjándu aldar. Í Íslenski Good-Templar 1982 segir: „ádrepan í síðasta blaði um hinn „ískyggilega faraldur“.  Í Sunnanfara 1894 segir: „hún gerir gis að þessum hjákátlega faraldri.“ Oft er ekki hægt að sjá hvort faraldur er haft í karlkyni eða hvorugkyni, en hvort tveggja virðist þó algengt á seinni hluta nítjándu aldar og hvorugkynið þó líklega algengara. Orðið er einnig iðulega haft í hvorugkyni á fyrsta hluta tuttugustu aldar, en slík dæmi eru nú alveg horfin.

Þegar karlkynsorð endar á -ur í nefnifalli eintölu er langoftast um beygingarendingu að ræða, þótt vissulega séu til fjölmörg orð þar sem -ur er stofnlægt, eins og akur, mannsnafnið Baldur o.m.fl. Þess vegna er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að málnotendur túlki -ur í faraldur sem nefnifallsendingu, eins og það er í mannsnafninu Haraldur. Af Risamálheildinni má ráða að dæmum um þetta fari fjölgandi. Mér finnst líka vel hægt að hugsa sér að -ur hafi upphaflega verið ending í karlkynsbeygingunni en hafi orðið stofnlægt fyrir áhrif frá hvorugkynsmynd orðsins þar sem það var alltaf stofnlægt – -ur er aldrei nefnifallsending í hvorugkyni. En hvað sem því líður er beygingin faraldur – farald svo gömul og algeng að hún hefur unnið sér hefð.