Í einni hinna frábæru endurminningabóka Sigurðar heitins Pálssonar, Táningabók, segir hann frá því að í Menntaskólanum í Reykjavík hafi á hans tíð nánast verið dauðasök að nota orðið hægt í merkingunni 'mögulegt', í setningum eins og þetta er (ekki) hægt. Þess í stað átti að nota unnt, vegna þess að hægt var sagt merkja 'auðvelt', enda hvorugkyn af lýsingarorðinu hægur sem getur merkt 'auðveldur' svo að vísað sé í skýringu þess í Íslenskri orðabók og Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924. Sú merking er þó að mestu horfin úr orðinu og er ekki getið í Íslenskri nútímamálsorðabók. Þar, og raunar einnig í Íslenskri orðabók, er myndin hægt hins vegar slitin frá hægur og orðin sjálfstætt uppflettiorð í merkingunni 'gerlegt, mögulegt'.
Það er ekki hægt að sjá hvenær hægt fer að merkja 'mögulegt' í stað 'auðvelt'. Setningin hér á undan er höfð tvíræð með vilja – hún getur bæði þýtt 'það er ekki auðvelt að sjá ...' og 'það er ekki mögulegt að sjá ...'. Í þessu tilviki geta báðar merkingarnar vel staðist – það er sannarlega ekki auðvelt að sjá þetta, og jafnvel alls ekki mögulegt. Við getum iðulega ekki fullyrt hvað höfundur texta átti við – hvað merkir t.d. „Þetta er hægt að sanna með einföldu dæmi“ í Baldri 1869, eða „Hitt er hægt að sanna, að löggjafarvaldið var í þeirra höndum“ í Ísafold 1875, eða „Af þessu er hægt að sjá, hvað kaupgjald vinnuhjúa hefir verið“ í Norðlingi 1880? Í þessum dæmum, og ótal mörgum öðrum, gæti merkingin verið hvort heldur 'auðvelt' eða 'mögulegt'.
Það er þó nokkuð ljóst að merkingin 'mögulegt' er komin til á seinni hluta nítjándu aldar. Það má ekki síst ráða af dæmum þar sem atviksorð, eins og vel eða alveg, stendur með hægt. Í Ganglera 1870 segir: „vjer álítum líka að það sje vel hægt fyrir þá.“ Í Norðanfara 1884 segir: „Það væri vel hægt að telja mjer trú um, að þessi grein í Norðanfara væri samin af presti.“ Í Þjóðólfi 1889 segir: „Ef svo er, þá er vel hægt að skilja herhlaup Þjóðviljans.“ Í Nýjum kvöldvökum 1914 segir: „Og fyrir eigin reynslu hefi eg komizt að þeirri sannfæringu, að það sé alveg hægt að afnema kendur- eða áskynjunarhæfileikann svo mikið sem maður vill.“ Í Lögréttu 1927 segir: „Í þessum reitum er alveg hægt að tempra hitann eftir vild.“
Í þessum dæmum finnst mér óeðlilegt að skilja hægt sem 'auðvelt'. Breyting á merkingu myndarinnar hægt stóð yfir í langan tíma en í seinni tíð merkir hún undantekningarlítið 'mögulegt', enda merkingin 'auðvelt' nánast horfin úr öðrum myndum lýsingarorðsins hægur eins og áður segir. En merkingin 'mögulegt' hefur alltaf verið bundin við hvorugkynið hægt – í setningum eins og „Það er ekki hægur leikur að meta stöðu marxisma í bandarískum háskólum“ í DV 1980 eða „jörðin ekki hæg til nytja“ í Íslendingaþáttum Tímans 1972 kemur eingöngu merkingin 'auðvelt' til greina. Myndin hægt var líka til skamms tíma eingöngu notuð þar sem hvorugkyn ætti við, í setningum eins og það / þetta er hægt.
Á seinni árum eru hins vegar dæmi um það að ekki hægt sé notað með karlkyns- og kvenkynsfrumlagi í merkingunni 'óþolandi', 'sem fer yfir öll mörk' eða eitthvað slíkt. Í ljóði Megasar, „Ungfrú Reykjavík“, segir: „það er þessi dama hún er ekki hægt“ – í bók Óttars Guðmundssonar, Viðrini veit ég mig vera – Megas og dauðasyndirnar segir reyndar að þessi setning sé „málfræðileg rangindi“ og vissulega er þetta óhefðbundið mál. Í DV 1995 segir: „Hann er ekki hægt, þessi maður!“ Í Morgunblaðinu 2018 segir: „Þessi maður er ekki hægt.“ Í DV 2020 segir: „Þú ert ekki hægt.“ Í samfélagsmiðlahluta Risamálheildarinnar má finna fjöldi dæma af þessu tagi, en þetta er, enn sem komið er a.m.k., bundið við óformlegt málsnið.

+354-861-6417
eirikurr