Í frétt á vef Ríkisútvarpsins í dag segir: „Heildarframlög til íslenskukennslu fyrir útlendinga aukast á nýjan leik eftir mikinn niðurskurð á árinu 2026“ og „Í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að verja samtals 691 milljón króna í íslenskukennslu útlendinga og námskeið fyrir flóttafólk. Upphæðin skiptist í 491 milljón króna almenna fjárveitingu undir framhaldsfræðslu og 200 milljóna króna tímabundið framlag til eins árs í gegnum Vinnumálastofnun“. Í fréttinni segir enn fremur: „Á fyrsta heila ári núverandi ríkisstjórnar lækkuðu framlögin niður í 361 milljón króna.“ Samkvæmt þessu væri hækkunin frá þessu ári 330 milljónir króna, eða um 91,4%. En því miður er það ekki svo gott.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir yfirstandandi ár sem lagt var fram í fyrrahaust voru vissulega ætlaðar 360,7 milljónir í verkefnið „Íslenskukennsla fyrir útlendinga“ undir fjárlagalið 22.20 og það er sú tala sem vísað er til í fréttinni. En í meðförum fjárlaganefndar var þessi upphæð hækkuð um rúmar 254 milljónir og í endanlegum fjárlögum ársins voru því settar 615 milljónir króna í þetta verkefni. Í skýringum við lið 22.20 í nýja frumvarpinu segir: „Fjárheimild málaflokksins hækkar um 130 m.kr. vegna íslenskukennslu fyrir útlendinga. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 254 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.“ Þessar 254 milljónir sem þarna falla niður eru væntanlega þær sömu og bætt var við á fjárlögum þessa árs.
Þótt 130 milljónir komi þar á móti, þannig að grunnurinn ætti að hækka upp í 491 milljón eins og nefnt er í frétt Ríkisútvarpsins, er samt um að ræða lækkun upp á 124 milljónir frá því sem er í fjárlögum þessa árs. En talan fyrir verkefnið „Íslenskukennsla fyrir útlendinga“ undir lið 22.20 í nýja frumvarpinu er ekki 491 milljón heldur 343,2 milljónir – þarna munar 148 milljónum. Ég verð að játa að ég botna ekki í þessu ósamræmi og veit ekki við hvora töluna á að miða. En þess verður að geta að þessu til viðbótar koma vissulega 200 milljónir á fjárlagalið 29.70: „Um er að ræða tímabundna fjárheimild til eins árs vegna íslenskunámskeiða fyrir flóttafólk og kemur til móts við tímabundna heimild sem féll niður árið 2026.“
Heildarupphæð sem á að verja í kennslu íslensku sem annars máls á næsta ári er því annaðhvort 543 eða 691 milljón. Sé fyrri talan rétt er um að ræða hátt í 70 milljón króna lækkun frá þessu ári, og meiri að teknu tilliti til verðlagsþróunar – sé seinni talan rétt er um að ræða rúmlega 75 milljóna hækkun í krónum talið. Eftir sem áður er heildarupphæðin töluvert lægri en var á árinu 2025 þegar 574 milljónum var varið í íslenskukennslu fyrir útlendinga og 150 milljónum í inngildingu sem felst að verulegu leyti í íslenskukennslu. Þetta er þó sagt með þeim fyrirvara að framsetning fjárlagafrumvarpsins er ekki til þess fallin að auðvelda venjulegu fólki að átta sig á einstökum tölum, og ég verð manna glaðastur ef þetta er rangt hjá mér.

+354-861-6417
eirikurr