Posted on

Nýtum gervigreind í þágu íslenskunnar

Ég fékk tölvupóst áðan þar sem mér var boðið á opnunarviðburð Haustráðstefnu Advania. Ég fór því að skoða dagskrá ráðstefnunnar og fannst leitt að sjá hvað ensku er þar gert hátt undir höfði, og sendi aðstandendum póst í tilefni af því. Á síðu opnunarviðburðarins er ensku og íslensku grautað saman á undarlegan hátt, og aðaldagskráin virðist að megninu eiga að fara fram á ensku þrátt fyrir að meirihluti fyrirlesara sé íslenskur. Ég þykist svo sem vita að enskan hafi verið og sé sjálfgefin í þessum heimi og notuð þar hugsunarlaust, og ég býst vissulega við að í hópi áheyrenda verði töluvert af fólki sem ekki skilur íslensku og þess vegna sé enskan notuð – en hvers vegna eru þá sum erindi og pallborðsumræður á íslensku?

En tímarnir eru að breytast, og í ljósi þess að ráðstefnan snýst fyrst og fremst um gervigreind og hagnýtingu hennar hefði þarna gefist gullið tækifæri til að sýna hvað gervigreindin getur og hafa erindi Íslendinga á íslensku en þýða þau í rauntíma yfir á ensku – og svo öfugt. Vegna framfara í gervigreind þarf enskan nefnilega ekki að vera sjálfgefin lengur – rauntímaþýðingar eru vel mögulegar þótt þær séu vissulega ekki fullkomnar. Ég vonast þess vegna til að í framtíðinni muni tæknifyrirtæki nýta betur þá tækni sem þau eru að þróa og vinna með til að efla íslenskuna í stað þess að ýta henni sífellt til hliðar. Ef við nýtum tækifærið ekki núna þegar tæknin leyfir okkur það er hætt við að íslenskan víki á fleiri og fleiri sviðum.