Posted on

Rafmagnslaust vegna áflogs

Í tilkynningu á heimasíðu RARIK í fyrradag stóð: „Vegna áflogs á rafmagnslínu varð rafmagnslaust í Eyja- og Miklaholtshreppi frá kl. 11:38 til 11:50 þann 7.9.2026.“ Vakin var athygli á þessu í Facebook-hópnum „Skemmtileg íslensk orð“ og spurt hvort þetta væri eðlileg skýring á rafmagnsleysi eða kannski gervigreindaríslenska. Vitanlega er áflog þekkt orð í merkingunni 'það að fljúgast á, slagsmál', en þá er það alltaf í fleirtölu – þarna er hins vegar um eintölu að ræða. Athugun leiddi í ljós að RARIK hefur notað orðið áflog undanfarið í svipuðum tilkynningum, en í umræðum kom í ljós að sumum fannst eðlilegra að tala um áflug en áflog, og það orð virðist vera eldra, en slæðing af dæmum má þó finna um bæði orðin.

Orðið áflog hefur verið notað í þessari merkingu a.m.k. undanfarinn hálfan annan áratug eða svo. Í tilvitnun í þáverandi framkvæmdastjóra Landverndar í frétt á vef Stjórnarráðsins 2012 segir: „Loftlínur hefðu hins vegar meiri sjónmengun í för með sér og verri áhrif á fuglastofna vegna áflogs.“ Í fréttatilkynningu frá Fuglavernd 2019 segir: „Þótt neikvæð áhrif raflína á fuglalíf hafi ekki verið rannsökuð með beinum hætti hér á landi, er vitað að slíkar línur hafa mikil umhverfisáhrif víða um heim vegna áflogs fugla.“ Í umsögn á vef Landsnets 2023 segir: „Í matsáætluninni eru ýmsir mælikvarðar sem taka tillit til áflogs fugla og fleira.“ Í skýrslu frá Umhverfisstofnun 2024 segir: „mesti fugladauði vegna áflogs er á sömu slóðum.“

Í Morgunblaðinu 2007 segir: „Þetta hvort tveggja er náttúrlega miklu alvarlegra mál en áflug á línur.“ Í Morgunblaðinu 2010 segir: „þar sem vakta skal áflug fugla á fyrirhugaða brú yfir Ölfusá.“ Í fyrirsögn í DV 2016 segir: „Veður, viðgerðir og áflug fugla.“ Í Sveitarstjórnarmálum 2018 segir: „Við höfum þurft að taka loftlínur niður og koma rafstrengjum í jörð við aðstæður þar sem mikið er um áflug fugla.“ Í fyrirsögn í tímaritinu Fuglar 2021 segir: „Áflug arna á raflínur.“ Í fyrirsögn á vef Fuglaverndar 2023 segir: „Áflug fugla á rúður.“ Á vef Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi segir: „Raflínur geta verið hættulegar fyrir fugla í opnum búsvæðum, þá helst vegna áflugs.“ Í Bændablaðinu 2024 segir: „Radar minnki áflug fugla.“

Eins og þessi dæmi sýna virðist myndin áflog fremur notuð í fræðilegu eða faglegu samhengi og því vera hálfgildings íðorð, en myndin áflug er frekar notuð í almennu máli – þarna eru þó engin skörp skil. Bæði orðin eru mynduð af sambandinu fljúga á – rétt eins og áflog í merkingunni 'það að fljúgast á, slagsmál'. Í Íslenskri orðsifjabók segirflog sé víxlmynd við flug (mynduð með svokölluðu a-hljóðvarpi) og áflog og áflug er því jafngild orðmyndun. En vegna þess að myndin flog kemur einkum fyrir í merkingunni 'óviðráðanlegt krampaástand, krampi' og fólk er vant fleirtöluorðinu áflog í annarri merkingu er svo sem ekkert undarlegt þótt ýmsum komi þessi notkun orðsins spánskt fyrir sjónir – en hún er ekki röng.