Barndómur

Hér vitjar J. M. Coetzee uppvaxtarára sinna í Suður-Afríku um og eftir 1950. Þetta er áhrifarík saga af dreng sem hermir eftir föður sínum en getur ekki virt hann, sem dáir móður sína en ýtir henni samt frá sér. Jafnhliða reynir hann að fóta sig í mótsagnakenndri veröld ólíkra þjóðarbrota, stétta og hópa, innan um óskrifaðar reglur sem hann er nauðbeygður til hlíta. Bjartur gaf út árið 2005. Rúnar Helgi fékk Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir sinn þátt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lesbók Morgunblaðsins 17. des. 2005: https://timarit.is/files/43066674