Ragnar Helgi Ólafsson fær Bókmenntaverðlaun Tómasar

Ragnar HelgiRagnar Helgi Ólafsson, meistaranemi í ritlist, fékk í haust Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti verðlaunin en þeim fylgja 700 þúsund krónur. Bókaútgáfan Bjartur gaf bókina út daginn sem verðlaunin voru afhent.

Í umsögn dómnefndar um bókina segir m.a.:

Hún ber vitni góðri myndgáfu höfundar en hann hefur líka eftirtektarverð tök á að klæða þær myndir í orð. Annað einkenni þessarar bókar væri að tefla saman að því er virðist óskyldum hlutum af vissum óhátíðleika. Þetta skapaði ákveðna spennu sem ljær ljóðunum aukna dýpt. Kæruleysið á yfirborðinu leynir á sér. Fjölbreytileiki er líka einn styrkur bókarinnar, hún er margradda í góðum skilningi; tekist er á við heimspekileg viðfangsefni jafnhliða þeim sem stundum eru kölluð hversdagsleg, en eru auðvitað alveg jafn sígild, hér eru prósaljóð og frásagnir jafnframt knöppum og meitluðum ljóðum. Tilfinningin er sú að lífið leyni á sér, ekkert er sem sýnist, lífið er sem næturveiði og því gildir að skyggnast dýpra í hylinn.

 

Áður hefur Ragnar Helgi sent frá sér bókina Bréf frá Bútan og smásagnasafnið Fundur útvarpsráðs þann 14. mars 1984 og áhrif hans á kynverund drengsins og fleiri sögur. Ragnar Helgi hefur einnig komið að bókaútgáfu í gegnum forlagið Tunglið.