Heimur smásögunnar er til umfjöllunar í fyrsta hefti Ritsins - tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands 2025. Um er að ræða ítarlegar útgáfur af erindum sem flutt voru á ráðstefnunni Heimur smásögunnar í Háskóla Íslands haustið 2023. Heftið samanstendur af þrettán ritrýndum greinum þar sem komið er að smásögunni úr ýmsum áttum, auk þess sem gefið er yfirlit yfir þróun smásagnafræða í inngangi. Ritið er gefið út í rafrænum og opnum aðgangangi á ritid.hi.is.

Sjálfur á ég þarna grein um ritun smásagna. Hún er skrifuð frá sjónarhóli ritlistarkennarans og í henni er að finna ýmis ráð handa höfundum og hugsanlega óráð líka.

Ritstjórar þessa þemaheftis eru Ásdís Rósa Magnúsdóttir, Ástráður Eysteinsson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og undirritaður, en aðalritstjóri Ritsins er Guðrún Steinþórsdóttir. Forsíðuna prýðir ljósmynd Gunnars Sverrissonar af ýmsum smásagnasöfnum. Um umbrot sá Helgi Hilmarsson og Dagbjört Guðmundsdóttir um prófarkalestur.