Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson kenndi námskeið í ritlist við HÍ
Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2026. Hún hefur lengi verið orðuð við verðlaunin. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar er hún sögð fá verðlaunin fyrir frumleg verk sem séu í gáskafullu samtali við klassíska hefð og þannig hafi hún skapað nýja farvegi fyrir samtímabókmenntir. Anne hefur einmitt þýtt verk úr grísku meðfram öðrum ritstörfum.
Það er gaman að segja frá því að haustið 2019 kenndu þau Anne Carson og Robert Currie maður hennar stutt námskeið fyrir MA-nema í ritlist. Þau kölluðu það Egósirkus. Í námskeiðslýsingunni sagði m.a.:
Smiðja um aðferðir við samyrkju. Markmiðið er að skoða og gera tilraunir með samstarf í listrænni sköpun. Þátttakendur vinna saman að ýmsum verkefnum eða æfingum og hanna verk sem verður sýnt eða flutt í lokin.
Ég fylgdist með fyrstu æfingu námskeiðsins. Það var eins konar dans sem nemendur áttu að spinna af fótum fram.
Fáein verka Anne Carson hafa komið út á íslensku, þar á meðal bókin Albertine-æfingarnar sem Ragnar Helgi Ólafsson þýddi og gaf út 2025. Það var bókaforlagið Tunglið sem gaf út en það stofnuðu þeir Ragnar Helgi og Dagur Hjartarson sem báðir eru með MA-gráðu í ritlist frá HÍ.
Við í ritlistinni við HÍ óskum Anne Carson innilega til hamingju með Nóbelinn og þökkum henni innlitið til okkar. Þess má geta að árið 2023 hlaut hún Vigdísarverðlaunin. Verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs.
Og svo er hún íslenskur ríkisborgari og hefur búið í Reykjavík.

