Ferðalok
Jón Karl Helgason. Ferðalok: Skýrsla handa akademíu. Svarta línan. Reykjavík: Bjartur, 2003, 144 síður.
Hvers vegna voru bein Jónasar Hallgrímssonar grafin upp í Kaupmannahöfn 1946 og hver urðu afdrif þeirra? Í bókinni er fjallað um sögu beinanna og örlög þeirra í skáldskap og veruleika.
Meðal efnis sem er til umfjöllunar eru Atómstöðin eftir Halldór Laxness, Fáfræðin eftir Milan Kundera, Á Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn eftir Björn Th. Björnsson og greinaskrif séra Ágústs Sigurðssonar. Þessum textum er telft gegn margvíslegum eldri heimildum, svo sem vitnisburði Sigurjóns Péturssonar á Álafossi, rannsóknarskýrslum Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar, fréttum íslenskra dagblaða, ásamt gögnum frá Alþingi, Þingvallanefnd og forsætisráðuneytinu.
Auk þess sem innihaldið í kistu Jónasar er gaumgæft er hér leitt í ljós hvernig beinamálið snerist öðrum þræði um þjóðernishugmyndir, pólitík, skáldlegan eignarétt og hagnýtingu á táknrænu og menningarlegu auðmagni.
Umfjöllun
- Skafti Hallgrímsson. "Helgimyndir í lausu lofti." Morgunblaðið 26. apríl 2003, s. 33
- Jón Ólafsson "Sjónhverfingar, syndir og hverfull veruleiki: Um bækur Svörtu línunnar." Ritið 3 (2003): 135-51.
- Benedikt Jóhannesson. "Að frádregnu monti og innantómum mikilmenskudraumum er ég ekkert." Heimur 21. apríl 2003.