From Iceland to the Americas

From Iceland to the Americas. Vinland and historical imagination. Ritstj. Tim Machan og Jón Karl Helgason. Manchester: University of Manchester Press, 2020.

Greinasafnið From Iceland to the Americas er ávöxtur af fjölþjóðlegu rannsóknarverkefni stórs hóps fræðimanna þar sem markmiðið var að kanna viðtökur íslenskra fornbókmennta í Norður-Ameríku. Meðal margra áhugaverðra greina í bókinni má nefna yfirlit Emily Lethbridge um skrif bandarískra ferðabókahöfunda um Ísland á 19. öld, greiningu Heather O'Donoghue á túlkun Neil Gaimans á norrænni goðafræði í skáldsögunni American Gods og grein Verenu Höfig um Vínland og rasíska öfgahópa í Bandaríkjunum. Tim Machan skrifar veigamikinn inngangskafla þar sem hann fjallar sögulega um fornnorrænt menningarminni í Norður- og Suður-Ameríku en aðrir höfundar eru Bergur Þorgeirsson, Kevin J. Harty, Amy C. Mulligan, Simon Halink, Jón Karl Helgason, Angela Sorby, Seth Lerer, Matthew Scribner og Dustin Gerhard.