Andlit á glugga

Andlit á glugga. Úrval íslenskra þjóðsagna og ævintýra með skýringum. Ritstj. Romina Werth og Jón Karl Helgason. Reykjavík: Forlagið, 2021.

Sæmundur fróði, Búkolla, Galdra-Loftur og Grýla eru meðal fjölmargra ógleymanlegra þjóðsagnapersóna sem hafa lifað með Íslendingum um aldir og sett mark sitt á tungumálið og þjóðarsálina. Sögurnar af þeim eru ekki aðeins gluggi að veruleika og hugmyndaheimi fyrri alda heldur lykill að undrum íslenskunnar.

Andlit á glugga er safn íslenskra þjóðsagna og ævintýra með nútímastafsetningu og ítarlegum orðskýringum, sem við Romina Werth höfum annast útgáfu á. Bókin hefur að geyma sextíu sögur þar sem lýst er ástum og grimmum örlögum, heimsku og útsjónarsemi, hugrekki og hryllingi. Sögunum er fylgt úr hlaði með fróðlegum inngangi og milliköflum Rominu þar sem varpað er ljósi á munnlega geymd efnisins, alþjóðlegt samhengi þess og gildi þessara bókmennta í menningarsögulegu samhengi. Myndirnar í bókinni eru eftir Halldór Baldursson.