Dan Brown

da-vinci-lykillinnDan Brown. Da Vinci lykillinn. Þýðendur: Snæbjörn Arngrímsson og Jón Karl Helgason (alias Ásta Guðbjartsdóttir). Reykjavík: Bjartur, 2003.

Safnstjóri Louvre í París finnst myrtur í einum sýningarsal safnsins og umhverfis hann gefur að líta einkennileg tákn og torræð skilaboð. Táknfræðingurinn Robert Langdon og franski dulmálssérfræðingurinn Sophie Neveu blanda sér í rannsókn málsins og uppgötva röð óvæntra vísbendinga sem leiða lesandann á slóð meistaraverka Leonardos da Vinci, leynifélagsins Bræðralags Síons og kaþólsku kirkjunnar. Þessi skáldsaga Dan Brown trónaði efst á metsölulistum víða um lönd um langa hríð í byrjun 21. aldarinnar enda er á ferðinni mögnuð spennusaga með sögulegu ívafi.

Umfjöllun