Dan Brown
Dan Brown. Da Vinci lykillinn. Þýðendur: Snæbjörn Arngrímsson og Jón Karl Helgason (alias Ásta Guðbjartsdóttir). Reykjavík: Bjartur, 2003.
Safnstjóri Louvre í París finnst myrtur í einum sýningarsal safnsins og umhverfis hann gefur að líta einkennileg tákn og torræð skilaboð. Táknfræðingurinn Robert Langdon og franski dulmálssérfræðingurinn Sophie Neveu blanda sér í rannsókn málsins og uppgötva röð óvæntra vísbendinga sem leiða lesandann á slóð meistaraverka Leonardos da Vinci, leynifélagsins Bræðralags Síons og kaþólsku kirkjunnar. Þessi skáldsaga Dan Brown trónaði efst á metsölulistum víða um lönd um langa hríð í byrjun 21. aldarinnar enda er á ferðinni mögnuð spennusaga með sögulegu ívafi.
Umfjöllun
- Arnaldur Máni Finnson. "Mannkyns- og listfræði með fenískum gleraugum." Vera 22/5 (2003): 69.
- Gunnar Hersveinn. "Leitin að týnda gralnum." Morgunblaðið 16. desember, 2003, s. B6.
- "Dularfullur þýðandi og hönnuður." Fréttablaðið 7. apríl 2004, s. 43.