Georgia Byng
Georgia Byng. Molly Moon og dáðleiðslubókin. Þýðendur Snæbjörn Arngrímsson og Jón Karl Helgason (alias Ásta Guðbjartsdóttir). Reykjavík: Bjartur, 2002.
Molly Moon er lítil stelpa sem býr á á munaðarleysingjahæli, ásamt fleiri flækingum. Þar fylgist hin grimmúðuga og skeggjaða ungfrú Anderson grannt með krökkunum, en Molly eyðir mestum tíma í litríkum draumaheimi sínum. Þegar Molly finnur dularfulla bók um dáleiðslu á bæjarbókasafninu, og lærir að koma fólki í trans, þá fara ævintýrin að gerast ...
Georgia Byng. Molly Moon stöðvar heiminn. Þýðandi Jón Karl Helgason. Reykjavík: Bjartur, 2004.
Molly Moon er munaðarlaus stúlka sem býr yfir ótrúlegum dáleiðsluhæfileikum. En þegar Molly er falið að rannsaka umsvif valdagráðugs bandarísks milljónamærings kemst hún heldur betur í hann krappan. Georgia Byng sló rækilega í gegn með Molly Moon og dáleiðslubókinni árið 2002. Molly Moon stöðvar heiminn er sjálfstætt framhald þeirrar bókar, bráðskemmtileg og spennandi lesning fyrir krakka á öllum aldri.
Umfjöllun
- Hildur Loftsdóttir. "Í gegnum augun." Morgunblaðið 24. desember 2002, s. 29.
- Katrín Jakobsdóttir. "Draumaheimur og dáleiðsla." DV 16. desember 2002, s. 15.
- Hildur Loftsdóttir. "Hin kynngimagnaða Molly." Morgunblaðið 7. desember 2004, s. 53.
- Nanna Elísa Jakobsdóttir. "Of sykursætur endir á skemmtilegri sögu." DV 8. desember 2004, s. 24.