Sam Shepard
Sam Shepard. Blóð hinnar sveltandi stéttar. Þýðendur Ólafur Haraldsson og Jón Karl Helgason. Flutt í útvarpsleikhúsinu 1991 og sett á svið af Leikfélagi Hafnarfjarðar 1992.
Leikurinn gerist á heimili Tatefjölskyldunnar sem stundar smábúskap í einu af Suðvesturríkjum Bandaríkjanna. Heldur er farið að halla undan fæti hjá fjölskyldunni enda er heimilisfaðirinn drykkfelldur draumóramaður sem útsmognir braskarar eiga auðvelt með að blekkja.
Umfjöllun
- Súsanna Svavarsdóttir. "Ef ekkert breytist." Morgublaðið 19. janúar 1992, s. 12.
- Auður Eydal. "Ameríska martröðin." DV 20. janúar 1992, s. 44.