Ný útgáfa af skáldfræðiritinu Ferðalokum
Laust eftir síðustu aldamót sá ég fyrir mér að líkamsleifarnar sem hvíla í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum yrðu sendar til DNA-greiningar á danskri rannsóknarstofu. Ég samdi ótímabæra skýrslu til að tryggja að erfðafræðingurinn, sem annast myndi rannsóknina, gæti glöggvað sig á viðfangsefninu. Að baki bjó djúpstæð löngun til að fá botn í íslenska þjóðarsál. Í tilefni þess að galgopalegur spádómur minn gæti bráðlega ræst birtist skáldfræðiritið Ferðalok. Skýrsla handa akademíu nú í nýrri útgáfu.
