Hugleiðing um innviði bókmenntakerfisins

Jón Karl Helgason, 08/04/2026

"Innviðir bókmenntakerfisins" er titil hugleiðingar sem við Marteinn Sindri Jónsson og Massimiliano Bampi birtum í nýju hefti Tímarits Máls og menningar. Þar leiðum við kenningar Itamars Even-Zohars um fjölkerfi bókmennta, sem fram komu fyrir hálfri öld, saman við nýlegar hugmyndir um innviði menningarlífsins. Markmiðið er vekja lesendur til umhugsunar um ýmsar víddir íslenskrar bókmenntasögu sem sjaldnar ber á góma en aðrar.