Hetjur taka hamskiptum. Námskeið á vormisseri 2014

Jón Karl Helgason, 12/11/2013

vinland1Hvað á Óðinn í Vafþrúðnismálum sameiginlegt með Gandálfi í sögum Tolkiens? Hver eru tenglin á milli Fóstbræðra sögu og skáldsögunnar Gerplu eftir Halldór Laxness og loks sýningar Þjóðleikhússins á leikriti með sama nafni? Hvað á Þór í Þrymskviðu sameiginlegt með persónunni sem Chris Hemsworth leikur í kvikmyndunum Thor og Thor: The Dark World? Hver eru tengsl Grænlendinga sögu og Eiríks sögu við manga-teiknimyndaseríuna Vinland Saga eftir Makoto Yukimura? Hvernig stóð á því að Ólafur Ragnar Grímsson færði páfanum í Róm styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur? Svörin við þessum og fjölmörgum öðrum spennandi spurningum fást í námskeiðinu Hetjur taka hamskiptum (ÍSL208G) sem ég kennir á B.A. stigi í íslensku á vorönn 2014. Það er ekki seinna vænna að skrá sig.

Villtur í völundarhúsi Borgesar

Jón Karl Helgason, 22/10/2013

borgesNæstkomandi föstudag stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fyrir málþinginu "Yfir saltan mar" sem helgað er skáldskap argentínska skáldsins Jorge Luis Borges. Fyrir hlé munum við Hólmfríður Garðarsdóttir, Sigríður Á. Eiríksdóttir og Jón Hallur Stefánsson halda stutt erindi á íslensku um afmarkaða þætti í höfundarverki Borgesar en eftir hlé flytur Daniel Balderston, prófessor og framkvæmdastjóri Borgesar-setursins (Borges-Center) við Háskólann í Pittsburg lengri fyrirlestur á ensku sem ber yfirskriftina: „Hvernig skrifaði Borges?". Erindi mitt á þinginu ber titilinn "Villtur í völundarhúsi Borgesar" en í því beini ég athygli að þeim tveimur smásögum skáldsins sem ég hef hvað mest dálæti á, "Garður gangstíga sem greinast" og "Dauðinn og áttavitinn". Þingið fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og stendur frá kl. 14.00-17.00.

Ritfregn um Skugginn af sjálfum mér

Jón Karl Helgason, 20/10/2013

kaktus og ást"Loksins: Fyrsta íslenska grafíska skáldsagan" er titill á stuttri ritfregn sem ég hef birt á Hugrás um grafísku skáldsöguna Skugginn af sjálfum mér eftir Bjarna Hinriksson. Líkt og titillinn gefur til kynna er um að ræða sjálfsævisögulegt verk og þó ekki, eins og Bjarni útskýrir vel í nýlegu útvarpsviðtali. Aðalpersónur sögunnar eru fráskilinn íslenskur teiknimyndasagnahöfundur, Kolbeinn Hálfdánarson, og sonur hans, Sindri. Lesandinn slæst í för með þeim feðgum í sólarlandaferð til Kanaríeyja og er myndrænn þáttur verksins að hluta til byggður á ljósmyndum frá ferð Bjarna og sonar hans á þær sömu slóðir. Um er að ræða afar áhugavert verk sem markar gleðileg tímamót í íslenskri teiknimyndasagnagerð.

Vofa Hitlers í TMM

Jón Karl Helgason, 04/10/2013

great-dictator"Vofa Hitlers" er titillinn á greinarkorni sem ég birti í 3. hefti Tímarits Máls og menningar 2013 en það er nýkomið út. Þar er brugðið upp svipmyndum úr íslenskri bókmenntasögu vikuna 5. til 12. maí árið 1945 en meðal þeirra sem koma við þá sögu eru Sigurður Nordal, Elías Mar, Gunnar Gunnarsson, Steinn Steinarr, Nína Tryggvadóttir, Guðmundur Kamban, Charlie Chaplin og Adolf Hitler. Um er að ræða sýnishorn úr handriti í smíðum sem ber vinnutitilinn Líkið í lestinni. Íslensk bókmenntasaga 1945-1948 sem ég vonast til að senda frá mér á næstu árum.

Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga

Jón Karl Helgason, 19/08/2013

Ódáinsakurpetit3Í fyrri hluta september kemur út á vegum Sögufélags bók mín Ódáinsakur:  Helgifesta þjóðardýrlinga. Hún fjallar um eðli og hlutverk þjóðardýrlinga og þær aðferðir sem notaðar eru til að rækta minningu þeirra á opinberum vettvangi. Höfuðáhersla er lögð á skáld og listamenn en stjórnmálamenn og trúarhetjur koma einnig við sögu. Bókin hefur að geyma níu tengdar tilraunir á mörkum bókmenntafræði og sagnfræði, þjóðernisrannsókna og minnisfræða. PS. Laugardaginn 21. september kl. 15.00 mun ég fara í pílagrímagöngu um íslenskan ódáinsakur í miðborg Reykjavíkur á vegum Sögufélags og Bókmenntaborgarinnar. Gangan hefst við Hljómskálann kl. 15.00.

Skáldskapur sem heimspeki

Jón Karl Helgason, 28/06/2013

Gass"Fiction as Philosophy: William H. Gass' Conception of Metafiction" er titill á  fyrirlestri sem ég hyggst flytja á 20. ráðstefnu alþjóðlegra samtaka samanburðarbókmenntafræðinga (International Comparative Literature Association) sem fram fer í Sorbonne-háskólanum í París vikuna 18.-24. júlí næstkomandi. Þar hyggst ég grafast fyrir um þá merkingu sem William H. Gass lagði í hugtakið metafiction um og eftir 1970 og bera hugtakið saman við önnur áþekkt hugtök frá þessum sama tíma.  Fyrirlesturinn er hluti af málstofu um hugtök og heiti í samanburðarbókmenntum og er á dagskrá morguninn 19. júlí.

Tieck, Fjölnir og fjölkerfakenning Even-Zohars

Jón Karl Helgason, 01/06/2013

tieck"Der Blonde Eckbert in an Alien Polysystem. The Reception of Tieck’s «skröksaga» in 19th-Century Iceland", er titill á grein sem ég birti í greinasafninu Textual Production and Status Contests in Rising and Unstable Societies sem út er komið í ritstjórn Massimiliano Bampi og Marina Buzzoni hjá Ca' Foscari-háskólanum í Feneyjum. Greinin fjallar um viðtökur á ævintýri eftir þýska skáldið Tieck sem birtist í íslenska tímaritinu Fjölni árið 1837. Eins og aðrir höfundar sem eiga greinar í safninu styðst ég við fjölkerfakenningu ísraelska fræðimannsins Itamars Even-Zohar en hann á einmitt fyrstu grein bókarinnar sem fjallar um íslenskar miðaldabókmenntir og hlutverk þeirra í íslensku miðaldasamfélagi. Bókin er hluti af ritröðinni Filologie medievali e moderni og er aðgengileg á netinu.

Sherlock Holmes, Giovanni Morelli og íslenskir miðaldahöfundar

Jón Karl Helgason, 27/05/2013

Sherlock"Clues of Authorship. Sherlock Holmes, Giovanni Morelli and Medieval Saga Authors" er titill á fyrirlestri sem ég flyt á ráðstefnu Association for the Advancement of Scandinavian Studies in Canada (AASSC) í borginni Victoria í Kanada miðvikudaginn 5. júní næstkomandi. Þar hyggst ég ræða um þær aðferðir og rök sem fræðimenn hafa beitt í umfjöllun sinni um hina sígildu spurningu: Hver var höfundur Njálu? Ráðstefnan er hluti af viðamiklu þingi félags- og hugvísindafólks í Kanada, Congress of the Canadian Federation for the Humanities and Social Sciences.

Útgáfa tímarritraðarinnar 1005

Jón Karl Helgason, 27/05/2013

1005Nýlega kom út fyrsti árgangur tímaritraðarinnar 1005 en áformað er að gefa út þrjá árganga hennar á jafnmörgum árum. Í fyrsta árgangi er að finna þrjú athyglisverð verk; sakamálasöguna Hælið eftir Hermann Stefánsson, ljóðabálkinn Bréf úr borg dulbúinna storma eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur og fræðigátuna Bautasteinn Borgesar eftir Jón Hall Stefánsson. Ég sit ásamt Ragnari Helga Ólafssyni, Eiríki Guðmundssyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur, Þresti Helgasyni og höfundunum þremur í ritnefnd. 1005 er gefið út í 200 tölusettum eintökum, áþreifanlega upplagið er á þrotum en hægt er að kaupa hvert hefti fyrir sig í ótakmörkuðu upplagi á vef e-bóka.

Styrkir til ólíkra verkefna

Jón Karl Helgason, 16/04/2013

vinlandÁ liðnum vikum hafa tvö ólík verkefni sem ég tek þátt í hlotið góða styrki. Annars vegar hlaut vefverkefnið Icelandic Online 5-6 styrk úr Kennslumálasjóði Háskóla Íslands og hins vegar hlaut rannsóknarverkefnið Afterlife of Eddas and Sagas styrki frá Watanabe Trust Fund og The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation. Síðarnefndu styrkirnir gera mér kleift að fara til Japan á komandi vetri til að vinna að rannsóknum á áhrifum íslenskra miðaldabókmennta á japanska teiknimyndasagnahöfunda.