Aristóteles er hinn stóri heimspekingurinn sem við dveljum við. Hann var nemandi Platons en stofnaði eigin skóla sem var um margt frábrugðinn Akademíu Platons. Í þessum fyrsta tíma kynnumst við manninum og verkum hans en einnig rökfræði (sem hann fann upp), þekkingarfræði og fyrstu kenningum í verufræði. Verufræði Aristótelesar verður til umfjöllunar síðar í námskeiðinu (23. og 30. október).
Texti nr. 1 er þýðing á tveimur köflum um rökfræði, nr. 2 eru kaflar úr verki sem tengist þekkingarfræði og nr. 3 er úr fyrsta verki (ungdómsverki) Aristótelesar um verufræði. Nr. 4 er greining á þessu efni. Nr. 5 A er umfjöllun um hvernig Aristóteles blandar saman greiningu á setningum og verufræði. Nr. 5 B-D eru pistlar um nokkra þætti í heimspeki Aristótelesar.
- Ugla: Aristóteles, Fyrri rökgreiningar I.1 og 4.
- Cohen/Curd/Reeve: 714-31 [= Aristóteles, Síðari rökgreiningar I.1-6, 10; II.8-10, 19].
- Cohen/Curd/Reeve: 694-700 [= Aristóteles, Kvíarnar 1-5]. Verkið hefur verið þýtt á íslensku (Akureyri, 1992).
- Shields: 117-124.
- Ítarefni:
- Ugla: Kenny: The de Interpretatione and the Categories.
- Adamson: Ævi og störf Aristótelesar.
- Adamson: Rökfræði Aristótelesar.
- Adamson: Þekkingarfræði Aristótelesar.